Simvastatín hefur blóðfitulækkandi áhrif. Það tilheyrir flokki lyfja sem hindrar myndun á kólesteróli í lifur og veldur því að kólersteról og fita lækkar í blóði.
Simvastatín er gefið sjúklingum sem hafa mikið kólesteról í blóði þegar breytingar á mataræði og hreyfingu hafa ekki borið árangur.
Simvastatín er einnig notað til þess að auka lífslíkur og minnka þörf á aðgerðum hjá sjúklingum sem hafa fengið kransæðastíflu og sjúklingum með hjartaöng.