Díkloxacillín er pensilínsamband. Lyfið hefur áhrif á vissar tegundir baktería sem hafa myndað ónæmi fyrir öðrum pensilínsamböndum, og það er notað við sýkingum af völdum þeirra.
Bakteríutegundir sem hafa ekki myndað þetta ónæmi eru almennt viðkvæmari fyrir öðrum pensilínsamböndum en díkloxacillíni og því ætti ekki að nota díkloxacillín við sýkingum af völdum þeirra.
Díkloxacillín þolist yfirleitt vel. Það getur þó, eins og önnur pensilínlyf, valdið miklum ofnæmisviðbrögðum. Einkenni á borð við hita, bólgna tungu eða háls og öndunarerfiðleika gefa venjulega til kynna að viðkomandi hafi ofnæmi fyrir öllum pensilínsamböndum.