Trimezol er sýklalyf sem inniheldur virku efnin trímetóprím og súlfametoxazól.
Trimezol er notað sem:
Meðferð og fyrirbyggjandi meðferð (frum- og framhaldsmeðferð) gegn Pneumocystis jiroveci (P. carinii) hjá fullorðnum og börnum.
Meðferð og fyrirbyggjandi meðferð gegn bogfrymlasótt (toxoplasmosis), meðferð við nókardíusýki (nocardiosis).
Meðferð við þvagfærasýkingum og bráð versnun á langvinnri berkjubólgu, þegar staðfest hefur verið að um bakteríur er að ræða sem eru næmar fyrir Trimezol og góð ástæða liggur fyrir vali þessarar samsetningar fram yfir stakt sýklalyf.
Meðferð við bráðri miðeyrnabólgu þegar góð ástæða liggur fyrir vali þessarar samsetningar fram yfir eitt sýklalyf.