Actavis creating value in pharmaceuticals

Ísland


Valpress Comp

Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Valsartan og hýdróklórótíazíð 80/12,5 mg og 160/12,5 mg.
Lyfjaflokkur:
Hjarta- og æðasjúkdómalyf
Undirlyfjaflokkur:
Lyf með verkun á renínangíótensín-kerfið
ATC flokkur:
C09DA03
Lyfseðilsskylt
Lyfjaform og notkun:
Filmuhúðaðar töflur til inntöku
Pakkningastærðir:

80/12,5 mg 98 töflu þynnupakkningar

160/12,5 mg 98 töflu þynnupakkningar

Ábendingar:

Valpress Comp 80/12,5 mg er ætlað til meðferðar hjá sjúklingum þar sem ekki næst nægilega góð stjórn á blóðþrýstingi með valsartan eða hýdróklórótíazíði einu sér.
Valpress Comp 160/12,5 mg er ætlað til meðferðar hjá sjúklingum þar sem ekki næst nægilega góð stjórn á blóðþrýstingi með valsartan einu sér.

Valpress Comp hefur blóðþrýstingslækkandi áhrif fyrir tilstilli beggja virku innihaldsefnanna, þ.e. hýdróklórótíazíðs (þvagræsilyf) og valsartans (angiotensin II blokki). Valsartan lækkar blóðþrýsting með því að hamla verkun blóðþrýstingshækkandi hormónsins angíótensín II. Það leiðir til æðavíkkunar og þar með lækkunar blóðþrýstings. Við samhliða notkun hýdróklórótíazíðs fæst frekari lækkun á blóðþrýstingi.
Hýdróklórótíazíð eykur saltútskilnað um nýrun. Aukinn saltútskilnaður ,,dregur“ með sér vatn úr líkamanum. Til lengri tíma litið stuðlar þetta að lækkun og stjórnun blóðþrýstings.



  • til baka
  • prenta
  • senda

SPC (upplýsingar fyrir fagfólk)

Valpress Comp.pdf