Actavis think smart medicine

Ísland


Verapamil Mylan

Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Verapamil 80 mg
Lyfjaflokkur:
Hjarta- og æðasjúkdómalyf
Undirlyfjaflokkur:
Kalsíumgangalokar
ATC flokkur:
C08DA01
Lyfseðilsskylt
Lyfjaform og notkun:

Filmuhúðaðar töflur til inntöku.

Pakkningastærðir:

100 stk. töfluglös

Athugið!
Framleiðslu á Verapamil Mylan 40 mg hefur verið hætt.
Verapamil Mylan 80 mg verða framleidd áfram og eru þær töflur með deiliskoru. Því er hægt að ná 40 mg styrkleika ef þess er óskað. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Ábendingar:
Verapamíl tilheyrir flokki lyfja sem kallast kalsíumblokkarar. Lyf í honum hindra flæði kalsíums inn í vöðvafrumur, en kalsíum er nauðsynlegt fyrir samdrátt vöðvafrumna. Vöðvafrumur í líkamanum innihalda mismikið af kalsíum og eru því ekki allar jafn háðar flæði kalsíums inn í frumuna. Áhrifa kalsíumblokkara gætir því mest hjá frumum með lítið kalsíum, eða vöðvafrumum í æðaveggjum og hjartavöðva. Kalsíumblokkarar eru flokkaðir innbyrðis eftir því hvort áhrif þeirra beinist aðallega að æðum eða hjarta. Verapamíl hefur áhrif á hjarta, þar sem það minnkar samdráttarkraft hjartans og víkkar út kransæðar. Lyfið er því notað við hjartaöng og háum blóðþrýstingi. Það hefur líka áhrif á leiðni í hjartanu og er vegna þess notað við hjartsláttartruflunum.
  • til baka
  • prenta
  • senda

SPC (Samantekt um eiginleika lyfs)

Verapamil Mylan (PDF 24,9kb)

Fylgiseðill (Upplýsingar fyrir sjúklinga)

Verapamil Mylan (PDF 22,19kb)