Actavis think smart medicine

Ísland


Zopiklon Mylan

Virk innihaldsefni og styrkleikar:
Zopiklon 5 mg og 7,5 mg
Lyfjaflokkur:
Tauga- og geðlyf
Undirlyfjaflokkur:
Geðlyf (psycholeptica)
ATC flokkur:
N05CF01
Lyfseðilsskylt
Lyfjaform og notkun:
Töflur til inntöku
Pakkningastærðir:

5 mg - 30 stk.

7,5 mg - 500 stk.

Ábendingar:

Zópíklón er svefnlyf. Það eykur áhrif hamlandi boðefnis, GABA, í heila með þeim afleiðingum að það styttir tímann sem það tekur fólk að sofna, fækkar andvökum og lengir svefntíma. Í venjulegum skömmtum raskar lyfið ekki svefnmynstri og svefn verður eðlilegur. Lyfið ætti aðeins að nota í skamman tíma í senn vegna ávanahættu. Ef lyfið er notað lengi getur svefninn skyndilega versnað við það eitt að hætta töku lyfsins. Zópíklón hefur ekki kvíðastillandi áhrif eins og svefnlyf af benzódíazepínflokki, t.d. flúnítrazepam, og hentar betur í tilfellum þegar svefntruflanir tengjast ekki kvíða.


 

  • til baka
  • prenta
  • senda

SPC (Samantekt um eiginleika lyfs)

Zopiklon Mylan 5 mg (PDF 59,64kb)

Zopiklon Mylan 7,5 mg (PDF 71,23kb)

Fylgiseðill (Upplýsingar fyrir sjúklinga)

 Zopiklon Mylan 5 mg og 7,5 mg (PDF 44,09kb)