Tannheilsa er jafn mikilvæg og almenn heilsa. Hreinar og heilar tennur bæta almenna líðan en skemmdum tönnum og bólgnu tannholdi getur fylgt vanlíðan. Eigin tennur alla ævi eru eftirsóknarverð lífsgæði og það er undir okkur sjálfum komið hvernig til tekst.
Flúor dregur úr virkni tannátu og græðir byrjandi tannátusár. Flúor virkar aðallega staðbundið með því að hemja úrkölkun og flýta endurkölkun glerungs og steinungs.
Actavis er með í sölu þrjár vörur / vörulínur af tannverndarvörum sem allar innihalda flúor:
- - Flux flúormunnskol
- - Fludent
- - Xerodent
Flux flúormunnskol
Flux Klorhexidin er bakteríudrepandi munnskol sem inniheldur einnig flúor.
Inniheldur 0,12% klórhexidín og 0,2% NaF og kemur í 250 ml flösku. Fyrir fullorðna og börn eldri en 12 ára.
Flux Junior er með 0,05% natríumflúoríð og er með góðu ávaxta-og mintubragði. Flux Junior er fyrir börn 6-12 ára og kemur í 500 ml flösku.
Flux flúormunnskol er með 0,2% Natríumflúoríð og er fyrir fullorðna og börn eldri en 12 ára. Flux er með fersku mintubragði og kemur í 500 ml flösku.
Regluleg notkun Flux munnskols styrkir tennur og fyrirbyggir tannskemmdir. Flux ætti að nota sem viðbót við tannburstun með flúortannkremi.
Nánar um Flux
Fludent Banan - Lausasölulyf

200 munnsogstöflur, hver tafla inniheldur natriumfluorid samsvarandi 0,25 af flúor.
Eykur munnvatnsframleiðslu og flúorinnihald munnvatnsins. Fludent Banan munnsogstöflur innihalda ekki sykur og hafa gott bananabragð.
Skömmtun:
Ráðlagður dagsskammtur Fludent Banan:
Fyrir börn yngri en 12 ára skv. ráði tannlæknis, læknis eða tannfræðings.
Fyrir eldri en 12 ára 1 munnsogstafla 6 sinnum á dag.
Best er að skipta flúorskammtinum í nokkra skammta yfir daginn.
Látið töflurnar leysast hægt upp í munni.
Gott er að mylja töflurnar fyrir yngstu börnin.
Sjá nánar hér: http://www.actavis.is/is/products/Fludent+Banan.htm
Xerodent - Lausasölulyf

90 munnsogstöflur, hver tafla inniheldur Malic Acid (eplasýra)
28,6 mg og natriumfluorid samsvarandi 0,25 mg af flúor.
Xerodent er lyf til varnar tannskemmdum notað við meðhöndlun einkenna vegna munnþurrks og fyrirbyggjandi við tannskemmdum hjá sjúklingum með munnþurrk.
Þreföld virkni Xerodents
• Eplasýra - örvar munnvatnsframleiðslu
• Flúor – ver tennurnar gegn skemmdum
• Xylitol – hemur bakteríuvöxt í munni
Munnþurrkur
• Eykur hættu á tannskemmdum
• Eykur líkur á sveppasýkingu í munnholi
• Minnkar festu gervitanna
Tvær ástæður eru einkum fyrir munnþurrki:
Sjúkdómar - Munnþurrkur stafar oft af ýmsum sjúkdómum,
Lyf - Ýmis lyf geta valdið munnþurrki, einkum geðlyf, róandi lyf, svefnlyf, blóðþrýstingslyf, bjúglyf og ofnæmislyf.
Skammtastærðir fyrir fullorðna: 1 tafla eftir þörfum, venjulega 6 sinnum á dag.
Við mikinn munnþurrk má auka skammtinn í 12 töflur á dag í takmarkaðan tíma. Töfluna á að láta bráðna hægt í munni. Dreifa skal skammtinumjafnt yfir daginn.
Sjá nánar hér: http://www.actavis.is/is/products/Xerodent.htm